Uncategorized, AlmenntNovember 23, 2005 1:00 am

Eh, já… Síðan er ekki alveg tilbúin, en það er strax búið að kítla mig. Takk Halldór (Þú deyrð! Það er ljótt að kítla!)

7 Hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey.

1. Giftast og eignast börn (ekki strax samt)
2. Fara á tónleika með Silverchair
3. Búa (aftur) í útlöndum
4. Ríða Dave Navarro
5. Læra á hljóðfæri
6. Fara til Ástralíu
7. Fara á roadtrip

7 Hlutir sem ég get gert.

1. Talað Ensku, Hollensku, Þýsku, og smá Sænsku
2. Þóst vera að hlusta á leiðinlegt fólk, en hafa ekki hugmynd um hvað það er að segja
3. Dottið inn á minn eiginn heim
4. Orðið veik daginn eftir fyllerí
5. Hlustað
6. Verið viðkvæm, og ég get farið að grátu út af engu
7. Verið góð vinkona

7 Hlutir sem ég get ekki gert.

1. Lifað án tónlistar
2. Sungið og klappað á sama tíma
3. Komið mér að verki (sérstaklega þegar ég þarf að skrifa ritgerð)
4. Vaknað á morgnanna, ef enginn rekur á eftir mér
5. Borðað endann á pulsum. Yukk!
6. Sofnað yfir bíómyndum
7. Skrifað með vinstri (reyndi það samt heilan dag)

7 Hlutir sem heilla mig við hitt kynið

1. Sjálfsöryggi og sjálfstæði
2. Flott hár
3. Persónuleiki. Hann þarf að vera skemmtilegur og góður
4. Kurteisi
5. Heillandi bros
6. Góður tónlistasmekkur
7. Hann má ekki taka sig of alvarlega

7 Frægir karlmenn sem heilla mig.

1. Dave Navarro (Pant vera uppí rúmi með honum heila helgi. Langa helgi)
2. Ewan McGregor (Ástæðan fyrir því að ég sé Mark Renton ekki sem skíthæl. Mest heillandi bros í heimi)
3. Daniel Johns (besti tónlistarmaður í heimi)
4. Brandon Boyd (Yeah, baby, yeah!)
5. Trent Reznor (Hann er svo svalur!)
6. Johnny Depp (Alltaf svalur, alltaf sætur, alltaf heillandi)
7. Troy Van Leeuwen (Fokkin’ kúlisti)

Gott að maður þarf ekki að lamenera þetta, maður myndi ekki vilja lenda í svona Ross dæmi.

7 orð sem eg segi oftast

1. Æji!!
2. Ég veit ekki
3. Magnað
4. Já, þú meinar það
5. Æm só sad æ kud spring
6. Glatað!
7. Þú deyrð!! (Þegar fólk kítlar mig)

7 manneskjur sem eg ætla þokkalega að kitla.

Like I said, mér finnst ljótt að kítla fólk. Ég ætla ekki að kítla neinn.

Bleb

UncategorizedNovember 20, 2005 6:22 am

dg