TónlistJanuary 25, 2006 9:55 pm

Hver ætlar að koma með mér á Hróaskeldu að horfa á fokkin Guðana í TOOL?

UncategorizedJanuary 24, 2006 11:01 pm

Ég er reið! Þetta eiga að vera skemmtilegir þættir, ekki sorglegir.

Tónlist, DjammJanuary 16, 2006 1:21 pm

Haustið 2005 var frekar leiðinlegt. Það var mikið af breytingum í gangi og mikil óvissa um framtíðina, en það er, sem betur fer, allt að skýrast núna. Það var svo mikið að gerast hjá mér og í kringum mig að á endanum missti ég allan áhuga á öllu. Ég byrjaði á því að klúðra öllu í skólanum, ég vanrækti vini mína, og ég nennti ekki að hlusta á tónlist.
Já, ÉG nennti ekki að hlusta á tónlist. Hún gerði ekkert fyrir mig á þessu tímabili. Mér leið bara verr þegar ég setti spilarann í gang og ég hafði ekki þolinmæði til að hlusta á heilann disk.
Ég fór síðan út um jólin til mömmu og pabba þar sem ég villtist inn í litla sæta plötubúð sem heitir Badestuerock og áður en ég vissi af þá var ég búin að strauja kortið og komin með eitt stykki Deftones plötu í poka.
Ég fór heim og skellti disknum inn á i-podinn og vá…. ég elska Deftones… ég elska tónlist… og elska ALLA diskana mína… (líka þá sem ég skammast mín fyrir).
Þessi diskur, ‘B-sides and rarities’, með Chino og félögum hratt af stað algjöru domino effecti. Ég fór að enduruppgötva gömlu Deftones diskana. ‘Wax and Wane’ minnti mig á hversu mikið ég dýrka Cocteau Twins, sem minnti mig á Jeff Buckley, sem minnti mig á Rufus Wainwright, sem minnti mig á Melissa auf der Maur, sem minnti mig á Dave Grohl og allt sem hann hefur snert, etc, etc…
Það er svo góð tilfinning þegar maður er búin að fullnægja þörfinni fyrir eitthvað nýtt að taka upp gömlu diskana og muna hvernig manni leið fyrsta skiptið sem maður hlustaði á þá og allt sem maður hefur gengið í gegnum með þá sem soundtrack lífsins.

Annars vil ég þakka Sindra, Baldri, Axel með ks og Merinni fyrir massa helgi.

Almennt, NámiðJanuary 12, 2006 11:49 pm

Jæja já… blogga.
Ég fór til Danaveldis eftir prófin og hélt upp á jólin með mömmu, pabba, Klemma bróður og fjölskyldu hans. Ég varð pínu leið yfir því hvað ég væri orðin gömul þegar ég sá hvað ég fékk lítið af pökkum miðað við litlu gríslingana hans Klemma, en svona er þetta víst. Við mamma og pabbi fengum lánaða íbúð til þess að þurfa ekki að sofa á dínum hjá brósa og vorum í massafínu pleisi á Tuborg Sundvej.
Síðan fóru Klemmi og fjölskylda til Íslands annan í jólum og ég og gamla settið brunuðum upp til Árósa þar sem við borðuðum góðan mat, kíktum á útsölur, horfðum á sjónvarp og héldum upp á afslappaðasta gamlárskvöld í sögu mannkynns (eða þannig). Við horfðum bara á Danina skjóta upp flugeldum, skáluðum síðan á íslenskum áramótum og svo fóru mamma og pabbi bara inn í rúm kl hálf þrjú. Loksins fékk mamma drauma áramótin sín.

Annars er skólinn byrjaður og nóg að gera. Ég ætla að reyna að vera í 20 einingum í vetur, en það er full mikið. Ég er samt ekkert að vinna, þannig að ég verð bara atvinnu nörd.