Everything is illuminated by premium music

Bara fjórir dagar í Tool!!!
Everything is illuminated by premium music

Bara fjórir dagar í Tool!!!
Ok, síðasta haust tók ég kúrsinn ‘Hollywood Musicals’ hjá Martin nokkrum Regal í háskólanum. Afhverju, AFHVERJU, gerði enginn svona í tíma?
Þá er Hróarskeldu tímaplanið komið upp. Jeij! Ég hlakka svo til! En það lítur þó út fyrir að það verði soldið erfitt að púsla saman og velja hvað maður vill sjá. Hérna er það sem ég er mest spennt fyrir.
Fimmtudagur:
18:00 Trivium
20:00 Bullet for My Valentine / Deus
21:30 Clap Your Hands Say Yeah!
22:00 Guns N’ Roses
22:30 Sigurrós
Föstudagur:
15:00 Martha Wainwright
18:00 Opeth
19:00 Morrissey
20:30 Rufus Wainwright
21:30 Bob Dylan
00:00 Death Cab for Cutie
01:00 Scissor Sisters
Laugardagur:
17:00 Deftones
19:00 Primal Scream
22:30 Tool
01:00 Kanye West (Hverjum datt í hug að setja Kayne West á eftir Tool?)
02:00 Him
Sunnudagur:
15:30 Arctic Monkeys
16:00 Wolfmother
17:00 The Strokes
18:00 Placebo / Hatesphere
19:30 Franz Ferdinand
20:30 Goldfrapp
20:45 Kaiser Chiefs
21:30 Roger Waters - Dark Side of the Moon
Æji fokk.. sjitt hvað verður erfitt að velja! En það er reyndar tvennt sem ég MUN horfa á og vera ALLAN tíman, sama hvað, og það eru Tool og Rufus! Já, já, Rufus á eftir að skerast við Morrissey og Bob Dylan sem eru Guðir margra, en herra Wainwright er minn Guð!
Ééééggg hlakka svo til! Ég hlakka alltaf svooo til!

Ég elska MySpace. Það er margir sem sjá ekki tilganginn með þessari síðu, og ég skil það vel. Fyrir suma þjónar þetta alls engum tilgangi.. bara leið til að sjást og sjá aðra og fylgjast með því hverjir þekkja hvern.
Ég setti mér strax þá reglu að ég yrði að þekkja fólk fyrir utan netheimana áður það yrði MySpace vinafólk mitt. Ég hef náð að halda mér nokkuð vel við þessa reglu, en hef gert nokkrar undantekningar. Ég fæ oft vinaboð frá einhverjum 40 Tyrkneskum köllum sem eru að leita að ‘good wife’, sem mér finnst ekki alveg málið. Ég er samt með nokkra ‘ókunnuga’ útlendinga sem vini, en þeir eru þá vinir vina, eða eitthvað spes.
Ég ákvað líka, þrátt fyrir að vera tónlistanörd, að vera ekki með mikið af hljómsveitum á vinalistanum. Í dag er ég bara með 4 útlenskar hljómsveitir og Iggy Pop, en við Iggy erum auðvitað gamlir vinir. Hvað varðar íslensku hljómsveitirnar þá þekki ég í flestum tilfellum einn eða fleiri meðlimi persónulega.
Fyrir suma er MySpace leið til að kynnast nýju fólki, og þetta er td auðveld og góð leið til að uppgötva nýja tónlist og fleira, en það sem ég elska við þetta fyrirbæri er að ég er búin að endurlífga sambönd við fólk sem ég hélt að ég myndi aldrei heyra frá aftur. Ég er búin að finna 7 gamla en ekki gleymda vini sem ég kynntist í Svíþjóð og hef ekki talað við í 6 til 8 ár (vá hvað ég er orðin gömul). Ég er fáranlega léleg í að skrifa e-mail og það er aðal ástæðan fyrir því að ég hef misst samband við þetta fólk. Mér finnst æðislegt að geta fylgst með hvað þau eru að gera í dag, getað séð myndir og hent inn kommenti án þess að þurfa að gera þetta allt á formlegu e-mail formi.
Að lokum við ég bara benda á að það er ekki sniðugt að baktala fólk á MySpace, því þá gerist þetta.
Jæja já, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir er búin að RRSsa síðuna mína, þannig að núna verð ég víst að blogga. Hvað findist ykkur ef ég breytti nafninu mínu í Ragna Jakobínudóttir Hjartardóttir Hjartar? Æj, nei, ég held ekki. Allt of langt!
En, það er allt og ekkert að gerast hjá mér þessa daganna.
Prófin eru búin og ég er byrjuð að vinna aftur í Landsbanka Íslands. Þannig að ef ykkur vantar aur, þá er málið að kíkja í Landsbankann í Holtagörðum… nema þú sért pirraður og leiðinlegur viðskiptavinur, þá skaltu bara fara í KB banka eða Glitni. Ég skil eiginlega ekki afhverju fólk fer svona mikið í banka… ég geri sama sem öll mín bankaviðskipti á netinu eða í gegnum síma. Hvernig nennir fólk að ’skjótast’ í bankann í matartímanum og bíða í hálftíma eða meira til að borga einn reikning sem tæki hálfa mínútu á netinu? Ok, ég skil það kannski með gamalt fólk sem kann ekkert á tölvur og hefur hvorteð er ekkert betra að gera, en hvað með venjulegt útivinnandi fólk sem kann á internetið?
Svo er annað, afhverju getur fólk ekki sagt allt bankanúmerið? Ég les ekki hugsanir. Hvernig á ég að vita að reikningurinn þinn er á Akureyri eða Keflavík ef þú tekur það ekki fram!
Viðsk.v.: ‘Já, ég ætla að taka út af reikning sem ég á’
Ég: ‘Segðu mér kennitöluna þína’
Viðsk.v.: ‘xxxxxx-xxx9?’ (ég fæ allar upplýsingar um viðkomandi upp á skjáinn, meðal annars mynd. Ef ekki er mynd þarf ég að sjá skilríki)
Ég: ‘Get ég fengið að sjá skilríki hjá þér?’
Viðsk.v.: ‘Ha!? Skilríki? Tilhvers? Nei, ég er ekki með nein skilríki… en þær þekkja mig hérna’ (Já, en ÉG þekki þig ekki! Viltu að hver sem er geti tekið út af reikningnum þínum? Ok, ég fæ einhvern til að staðfesta að þetta sé í raun og veru manneskjan…)
Ég: ‘Og hvaða reikning ætlaru að taka út af?’
Viðsk.v.: ‘1510.’ (Ég sé að það er enginn reikningur tengdur þessari kennitölu með þetta númer)
Ég: ‘Er þetta reikningur á þínu nafni?’
Viðsk.v.: ‘Já. Eða, sko, nei, maðurinn minn á hann. En ég er með prófkúru.’
Ég: ‘Ok. Hvernig reikningur er þetta?’
Viðsk.v.: ‘Æji.. svona.. uh.. bók held ég’ (Ok, 05, þá, og ég geri ráð fyrir að reikningurinn sé í mínu útibúi, fyrst ekkert annað er tekið fram, en nei.)
Ég: ‘Er hann frá þessu útibúi?’
Viðsk.v.: ‘Ha? Nei. Á Akureyri!’
Hvernig væri að segja bara:
‘Góðan daginn. Ég ætla að taka út af reikningi sem er skráður á manninn minn. Númerið er 162-o5-1510′
Svo fengi ég bara kennitölu og skilríki og komið!
Annars er það í fréttum að ég er að flytja aftur í Skerjafjörðin til mömmu og pabba. Þau eru nú komin heim frá Danaveldi og voru að fá húsið afhent aftur. Nú er búið að rífa út gamla eldhúsið og setja upp þessa fínu Ikea innréttingu með 2 ofnum og nýjum ísskáp. Svo á eftir að mála og gera ýmislegt, en ég þarf samt að flytja áður en ég fer á ROSKILDE!
Ó já! Stelpan er að fara á Hróarskeldu! Fékk miðann minn í póstinum í dag (annað en Heimir Berg). Heimir, þetta reddast! Bróðir minn fór á fund í Roskilde í fyrra og ákvað að honum langaði að kíkja í hátíðina. Hann rölti bara í miðasöluna og reif kjaft þangað til að hann fékk 5 miða fyrir sig og jakkafataklæddu vini sína. Allt er hægt.
Ég er allavega að fara að sjá Tool (Ari, hver er þessi Guðni?), Deftones og Rufus Wainwright!! Aaarg! Það verður svo gaman! Jeij, Jeij, Jeij!
Jæja, farin að sofa. Vinna á morgun.