Jæja já, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir er búin að RRSsa síðuna mína, þannig að núna verð ég víst að blogga. Hvað findist ykkur ef ég breytti nafninu mínu í Ragna Jakobínudóttir Hjartardóttir Hjartar? Æj, nei, ég held ekki. Allt of langt!
En, það er allt og ekkert að gerast hjá mér þessa daganna.
Prófin eru búin og ég er byrjuð að vinna aftur í Landsbanka Íslands. Þannig að ef ykkur vantar aur, þá er málið að kíkja í Landsbankann í Holtagörðum… nema þú sért pirraður og leiðinlegur viðskiptavinur, þá skaltu bara fara í KB banka eða Glitni. Ég skil eiginlega ekki afhverju fólk fer svona mikið í banka… ég geri sama sem öll mín bankaviðskipti á netinu eða í gegnum síma. Hvernig nennir fólk að ’skjótast’ í bankann í matartímanum og bíða í hálftíma eða meira til að borga einn reikning sem tæki hálfa mínútu á netinu? Ok, ég skil það kannski með gamalt fólk sem kann ekkert á tölvur og hefur hvorteð er ekkert betra að gera, en hvað með venjulegt útivinnandi fólk sem kann á internetið?
Svo er annað, afhverju getur fólk ekki sagt allt bankanúmerið? Ég les ekki hugsanir. Hvernig á ég að vita að reikningurinn þinn er á Akureyri eða Keflavík ef þú tekur það ekki fram!
Viðsk.v.: ‘Já, ég ætla að taka út af reikning sem ég á’
Ég: ‘Segðu mér kennitöluna þína’
Viðsk.v.: ‘xxxxxx-xxx9?’ (ég fæ allar upplýsingar um viðkomandi upp á skjáinn, meðal annars mynd. Ef ekki er mynd þarf ég að sjá skilríki)
Ég: ‘Get ég fengið að sjá skilríki hjá þér?’
Viðsk.v.: ‘Ha!? Skilríki? Tilhvers? Nei, ég er ekki með nein skilríki… en þær þekkja mig hérna’ (Já, en ÉG þekki þig ekki! Viltu að hver sem er geti tekið út af reikningnum þínum? Ok, ég fæ einhvern til að staðfesta að þetta sé í raun og veru manneskjan…)
Ég: ‘Og hvaða reikning ætlaru að taka út af?’
Viðsk.v.: ‘1510.’ (Ég sé að það er enginn reikningur tengdur þessari kennitölu með þetta númer)
Ég: ‘Er þetta reikningur á þínu nafni?’
Viðsk.v.: ‘Já. Eða, sko, nei, maðurinn minn á hann. En ég er með prófkúru.’
Ég: ‘Ok. Hvernig reikningur er þetta?’
Viðsk.v.: ‘Æji.. svona.. uh.. bók held ég’ (Ok, 05, þá, og ég geri ráð fyrir að reikningurinn sé í mínu útibúi, fyrst ekkert annað er tekið fram, en nei.)
Ég: ‘Er hann frá þessu útibúi?’
Viðsk.v.: ‘Ha? Nei. Á Akureyri!’
Hvernig væri að segja bara:
‘Góðan daginn. Ég ætla að taka út af reikningi sem er skráður á manninn minn. Númerið er 162-o5-1510′
Svo fengi ég bara kennitölu og skilríki og komið!
Annars er það í fréttum að ég er að flytja aftur í Skerjafjörðin til mömmu og pabba. Þau eru nú komin heim frá Danaveldi og voru að fá húsið afhent aftur. Nú er búið að rífa út gamla eldhúsið og setja upp þessa fínu Ikea innréttingu með 2 ofnum og nýjum ísskáp. Svo á eftir að mála og gera ýmislegt, en ég þarf samt að flytja áður en ég fer á ROSKILDE!
Ó já! Stelpan er að fara á Hróarskeldu! Fékk miðann minn í póstinum í dag (annað en Heimir Berg). Heimir, þetta reddast! Bróðir minn fór á fund í Roskilde í fyrra og ákvað að honum langaði að kíkja í hátíðina. Hann rölti bara í miðasöluna og reif kjaft þangað til að hann fékk 5 miða fyrir sig og jakkafataklæddu vini sína. Allt er hægt.
Ég er allavega að fara að sjá Tool (Ari, hver er þessi Guðni?), Deftones og Rufus Wainwright!! Aaarg! Það verður svo gaman! Jeij, Jeij, Jeij!
Jæja, farin að sofa. Vinna á morgun.


Hey, ég held að bloggið þitt sé eitthvað bilað. Eina sem ég sé í þessari færslu er ‘bla bla bla.. bla bla.. bla bla bla’.
Furðulegt.
Comment by Kristján Atli — June 16, 2006 @ 7:58 pm
Hey!
Comment by Ragna — June 16, 2006 @ 10:00 pm