Nei, ég er ekki hætt að blogga, en netleysi fylgir bloggleysi. Eins og flestir vita var ég að flytja aftur heim á Hótel Mömmu. Það er gott mál í sjálfu sér, en það er ennþá allt á hvolfi í húsinu. Það er verið að skipta um eldhús og það er ennþá allt út í kössum og dóti. Skemmtilegheit.
Annars er nú ekki mikið að frétta af mér. Það var auðvitað geðveikt á Hróarskeldu! Ó já! Það ver heitt og sveitt og skítalykt, en svooo gaman!! Ef þið viljið heyra alla ferðasöguna það verðið þið bara að hringja í mig eða hitta mig. Nenni ekki að blogga um hana.
Í gær keyrði ég Porsche. Þetta var nú bara lítill hringur í hverfinu, en vááá… mig langar í svona bíl!! Það var sko ekkert gaman að keyra Nissaninn hans Halldórs á leiðinni í bíó eftir þetta… en Supermann bætti upp fyrir það.
Mmm… Supermann… nammi..

