Almennt, Menning og SamfélagSeptember 28, 2006 11:18 am

Hver man ekki eftir Full House þáttunum?

Ég fann þetta fallega myndband á netinu þar sem Uncle Jesse er að spila með grúppunni sinni ‘Jesse and the Rippers’. Ætli þetta séu Olsen tvíbbarnir naked? Held (og vona) reyndar ekki.


Annars, ef þið viljið missa allt álit á Bob Saget sem fyrirmyndar fjölskyldu pabba, þá er málið að kíkja á þetta.

TónlistSeptember 17, 2006 1:42 am

Ó já! Ég fór á Nick Cave tónleika í höllinni í kvöld. Ég vissi svo sem að maðurinn væri snillingur, en vá! Þetta voru vægast sagt magnaðir tónleikar, enda tók hann alla helstu slagarana (nema into my arms, sem hann sagði að væri disasterous þegar þeir taka það læf).

Mér fannst stundum eins og ég væri að horfa á tónleika úr Tim Burton mynd, því Nick Cave sjálfur og fiðluleikarinn gætu léttilega verið persónur úr einni slíkri.

Spurning um að kíkja á ‘The Proposition‘ og athuga hvort karlinn sé jafn góður handritshöfundur og hann er lagahöfundur.

TónlistSeptember 14, 2006 2:30 am

Jahá. Rockstar Supernóva bara búið og Lucas vann. What the fuck? Vá hvað ég átti ekki von á því. Til hamingju Canada að Lucas fæddist þar.

Eeen, vá hvað ég er sátt með úrslitin. Fegin fyrir Magna hönd að hann er ekki fastur í einhverri glataðri hljómsveit næsta árið. Hann er svo sannarlega búinn að sanna að hann er frábær söngvari, hljóðfæraleikari og listamaður og fyrir honum standa allar dyr opnar eftir þetta ævintýri. Hann hefur allavega unnið hug og hjörtu Íslendinga og eflaust nokkura útlendinga í leiðinni. (Bara plííís ekki fara aftur í Á móti sól!)

Dilana er frábær söngkona og skemmtikraftur, en dramaqueen og ömurlegur textahöfundur. Supersoul? Ertu að grínast? Ég segi samt pant frekar fá að syngja með House-bandinu en Supernova. Til Hamingju með það.

Svo er það Toby. Ég verð að segja að ég var alveg sannfærð um að hann myndi vinna þetta og var mjög hissa þegar hann var látin fara. Originalinn hans var ‘killer, dude’ eins og Dave myndi segja, og þess vegna mæli ég með að fólk tjekki á Juke Kartel.

Anyways, farin að sofa.
Evs

AlmenntSeptember 13, 2006 6:55 pm

Skrýtið hvað tíminn líður hratt. Í dag er ár síðan Anna Magga kvaddi okkur og ég er varla búin að fatta það. Mér finnst að vissu leyti eins og hún sé ennþá í Danmörku með Óla og hafi það gott. Jarðaförin henner er án efa það erfiðasta sem ég hef þurft að gera í lífinu og ég vona að ég þurfi ekki að kveðja fleyri vini fyrr en ég er orðin eldgömul. Það er svo óréttlátt að svona ungt fólk sé tekið frá okkur. Anna Magga var frábær stelpa og góð vinkona. Það var alltaf gaman í vinnunni þegar hún var á vakt, enda alltaf hægt að draga upp úr henni allskonar skemmtilegt slúður.
Ég man sérstakilega eftir einni vakt okkar saman. Það var brjálæði að gera og allt á fullu uppá Hard Rock. Allir voru hlaupandi fram og til baka og mikið kaos inni bössi. Ég stóð í mínu sakleysi í stutta, hvíta kjólnum mínum að ganga fra diskum þegar Anna Magga kemur inn og missir fullt bluebox af salasasósu yfir mig. Ég var með salsasósu frá öxl og niður á rass og Anna varð alveg miður sín. Greyjið Anna Magga bauðst til að skipta um kjól við mig og allt, en mér fannst þetta svo fyndið að mér var alveg sama um að líta út fyrir að hafa lent í svakalegu túr slysi, en hún var samt með samviskubit allt kvöldið.
Ég er svo þákklát fyrir að hafa fengið að kynnast þessari frábæru stelpu þrátt fyrir að það hafi verið stutt. Ég mun geyma hana í minningum mínum, og þá sérstaklega fallega hlátur hennar.
Konni og Ingi, hugur minn er allur hjá ykkur í dag. Þið eruð hetjur.