Jahá. Rockstar Supernóva bara búið og Lucas vann. What the fuck? Vá hvað ég átti ekki von á því. Til hamingju Canada að Lucas fæddist þar.
Eeen, vá hvað ég er sátt með úrslitin. Fegin fyrir Magna hönd að hann er ekki fastur í einhverri glataðri hljómsveit næsta árið. Hann er svo sannarlega búinn að sanna að hann er frábær söngvari, hljóðfæraleikari og listamaður og fyrir honum standa allar dyr opnar eftir þetta ævintýri. Hann hefur allavega unnið hug og hjörtu Íslendinga og eflaust nokkura útlendinga í leiðinni. (Bara plííís ekki fara aftur í Á móti sól!)
Dilana er frábær söngkona og skemmtikraftur, en dramaqueen og ömurlegur textahöfundur. Supersoul? Ertu að grínast? Ég segi samt pant frekar fá að syngja með House-bandinu en Supernova. Til Hamingju með það.
Svo er það Toby. Ég verð að segja að ég var alveg sannfærð um að hann myndi vinna þetta og var mjög hissa þegar hann var látin fara. Originalinn hans var ‘killer, dude’ eins og Dave myndi segja, og þess vegna mæli ég með að fólk tjekki á Juke Kartel.
Anyways, farin að sofa.
Evs


Eins og slegið á mitt lyklaborð!
En lítum á björtu hliðarnar! Fyrst Toby var ekki valinn, þá þurfum við ekki að kaupa diskinn með þessum gömlu útúrtjúttuðu kókaínpoppurum.
Comment by Arndís — September 14, 2006 @ 10:18 am
Það er satt! Langar mun fremur að kaupa disk með Juke Kartel
Comment by dóri — September 14, 2006 @ 12:50 pm
Ég er sammála með Toby. Taldi hann alltaf vera sigurvegarann.
Comment by Óttar — September 14, 2006 @ 8:12 pm