TónlistSeptember 17, 2006 1:42 am
Ó já! Ég fór á Nick Cave tónleika í höllinni í kvöld. Ég vissi svo sem að maðurinn væri snillingur, en vá! Þetta voru vægast sagt magnaðir tónleikar, enda tók hann alla helstu slagarana (nema into my arms, sem hann sagði að væri disasterous þegar þeir taka það læf).
Mér fannst stundum eins og ég væri að horfa á tónleika úr Tim Burton mynd, því Nick Cave sjálfur og fiðluleikarinn gætu léttilega verið persónur úr einni slíkri.
Spurning um að kíkja á ‘The Proposition‘ og athuga hvort karlinn sé jafn góður handritshöfundur og hann er lagahöfundur.


