Ó já! Ég fór á Nick Cave tónleika í höllinni í kvöld. Ég vissi svo sem að maðurinn væri snillingur, en vá! Þetta voru vægast sagt magnaðir tónleikar, enda tók hann alla helstu slagarana (nema into my arms, sem hann sagði að væri disasterous þegar þeir taka það læf).
Mér fannst stundum eins og ég væri að horfa á tónleika úr Tim Burton mynd, því Nick Cave sjálfur og fiðluleikarinn gætu léttilega verið persónur úr einni slíkri.
Spurning um að kíkja á ‘The Proposition‘ og athuga hvort karlinn sé jafn góður handritshöfundur og hann er lagahöfundur.



það þarf nú ekki aðra ástæðu til að sjá þessa mynd en að Guy Pearce er í henni… he’s soooo hot!
annars hef ég aldrei komist inn í nick cave, finnst into my arms eiginlega eina þolanlega lagið með honum… þarft að kenna mér að meta hann someday
Comment by sófus — September 17, 2006 @ 11:41 am
Damn you fyrir að ná miða….
Comment by Helga — September 17, 2006 @ 2:07 pm
Sammala siðasta ræðumanni!
Damn you!!!!
Comment by Sindri — September 17, 2006 @ 4:47 pm