Ég á það til að kikjá á stjörnuspána mína þegar ég fletti blöðum. Ég trúi svo sem ekki mikið á þetta, en stundum er nú alveg eitthvað til í þessu. Um daginn stóð ‘tvíburinn þarf að hætta að velta öllu svona mikið fyrir sér og venja sig á að taka ákvörðun strax því þá mun honum líða miklu betur. Þetta á nú eflaust við um fleiri en einungis þá sem eru fæddir í tvíburamerkinu, en ég á oft í miklum erfiðleikum með að ákveða mig. Er með einhvern valkvíða þegar kemur að vissu hlutum, og finnst best þegar er valið fyrir mig.
Nú er ég komin á fjórða ár í þriggja ára námi og þarf að fara að byrja á BA ritgerðinni. Í fyrra var planið að taka 20 einingar á haustönn og 20 á vorönn og skrifa ritgerðina um sumarið. Það gekk ekki eftir, en í fyrra haust hætti ég með kærastanum mínum og missti vinkonu á svipuðum tíma. Námið var ekki beint það sem ég var að hugsa um og endaði með að klára 12 einingar en ekki 20. Á vorönn voru enn miklar breytingar í gangi í kringum mig og námið ennþá frekar aftarlega í forgangsröðinni.
Þar sem ég átti enn nokkrar einingar, var frekar pointless að skrifa BA ritgerð yfir sumarið, en ég ætlaði samt að reyna að lesa mig aðeins til og undirbúa mig aðeins fyrir hana. Ég gerði mér svo sem grein fyrir því að ég væri að vera soldið bjartsýn - hver les fyrir skólann yfir sumarið? - en ég setti mér samt það markmið að vera búin að ákveða efni fyrir þessa blessuðu ritgerð um miðjan júli.
Það ætti nú ekki að vera svo mikið mál að ákveða ritgerðar efni. En svo kom júlí og fór, og svo kom ágúst og skólinn byrjaði, og svo kom september og fór og þá hugsaði ég ‘Fokk, fokk, fokk!’ Ég er búin að hugsa og hugsa um hvað ég ætla skrifa um í marga mánuði, en ekkert. Ég hef ekki fengið eina góða hugmynd, sem ég gæti hugsað mér að skrifa um. Ég var alveg komin á það að taka bara klassísku leiðina og skrifa eitthvað um Shakespeare og rumpa þessu af. Vúbbdídú.
Á sunnudaginn fór ég út að borða með vini mínum (sushi í Iðuhúsinu! Namminamm) og við vorum að tala um skólann og hvaða kúrsum ég væri í. Hann lærir stærðfræði alla daga (pant ekki!) og var að öfunda mig fyrir að fá að lesa bækur eftir Tolkien, Terry Pratchett, CS Lewis fyrir skólann og spurði afhverju ég skrifaði ekki bara um Tolkein til dæmis. Mér hafði reyndar dottið það í hug, enda er hann mjög áhugaverður rithöfundur og hægt að gera margt í kringum hann. Af einhverri ástæðu hef ég samt aldrei verið alveg ánægð með þá hugmynd.
Á mánudaginn fór ég svo í tíma í fantasíu barna- og unglingabókmenntum á fyrirlestur um ‘Charlie and the Chocolate Factory’ eftir Roald Dahl og það rann uppi fyrir mér ljós. Afhverju skrifa ég ekki um eitthvað eftir Roald Dahl? Ég las bækurnar hans fyrst á hollensku þegar ég var krakki, las þær svo aftur á þýsku þegar ég bjó Hamborg og er nú að lesa Charlie fyrir skólann. Þetta er eitthvað sem ég hef áhuga á og mun hafa gaman af. Jeij!
Það er þá ákveðið að BA ritgerðin mín í Ensku verður um eitthvað sem tengist Roald Dahl og mér líður miklu betur. Þá er bara að ákveða hvort það verður Matilda, Witches eða Charlie.

Jssr.


Roald Dahl er hugsanlega einn uppáhalds rithöfundur minn… Hef lesið allar hans bækur, og elska þær allar. The BFG hefur verið among my fave síðan ég var svona 6 ára… ef þú þarft einhverja hjálp, ég er ansi fróður um hann og hans verk
Comment by sófus — October 10, 2006 @ 10:26 pm
Til hamingju með það og einnig með hvað þú ert orðin duglegri að blogga - og það bara heilu ritgerðirnar. Þú ert farin að blogga meira en ég!
Comment by dóri — October 11, 2006 @ 12:26 pm
Óli: Takk fyrir það
Halldór: Já, það er svona þegar Gunni Hinn er hættur, Stjáni er hættur og þú ert ekkert að standa þig…
Comment by Ragna — October 11, 2006 @ 12:50 pm
Hey! Þú mátt sko ekki skilja uppáhaldið mitt útundan!! Danni heimsmeistari!!! Væri síðan ekki sniðugt ef ég skrifaði um Quentin Blake, þann sem myndskreytti langflestar bækurnar hans Roald Dahl, í BA ritgerðinni minni!?!?
Comment by Ragna Þorbjörg — October 11, 2006 @ 1:19 pm
Jú!! Myndirnar hans Quentin Blake eru æði! Hann er definitely einn af mínum uppáhalds.. ö.. myndskreyturum!
Comment by Ragna — October 11, 2006 @ 2:39 pm
Glæsilegt Ragna mín!
Maður á kannski smá heiður i að hjálpa þér að finna ritgerðarefni???
Comment by Anna Kristjana — October 11, 2006 @ 10:40 pm
Varstu búin að fatta að þú ert hollenskur hamborgari?
Comment by Ari — October 19, 2006 @ 2:55 pm