Scheisse hvað ég skemmti mér vel í gær! Airwaves er alveg málið í ár and I pity the fool sem á ekki miða.
Í gær var byrjað í Hafnarhúsinu þar sem við sáum Mates of State (ekkert spes), Hot club de Paris (tónlistin ekkert spes, en gaurarnir algjör snilld) og Tilly and the Wall (what?).
Svo var farið yfir á Gaukinn þar sem Eberg var að spila. Af einhverri ástæðu var ég búin að stimpla Eberg sem rusl, þannig að ég var plesentlí sörpræst, því þau voru bara nokkuð skemmtileg. Held að ég hafi verið að hugsa um 7berg eða eitthvað.
Næst komu SNILLINGARNIR í Datarock. Stuð, stuð og meira stuð. Minns langar í svona galla!

Á eftir Datarock stigu Whitest Boy Alive á svið og ég veit ekki hvert fólk ætlaði. Ég var umkringd einhverjum brjáluðum aðdáendum og hélt í smá stund að ég væri komin á Backstreet Boys tónleika í Þýskalandi. WBA voru algjör snilld, og myndaðist brjáluð stemmning. Þegar þeir stigu aftur á svið eftir uppklapp fengu þeir bara að taka eitt stutt lag, því löggimann var mættur fyrirutan. Stuð og gaman, jáhá.

