Jæja. Þá er Airwaves bara búið og ég fáranlega sátt með hátíðina!

Við Diddi og Árni kíktum í hafnarhúsið á Föstudaginn þar sem við sáum Islands, Apparat Organ Quartet, Jakobínarína og The Go! Team. Það var rosa gaman og hittum við fullt af fólki. Strákarnir sáu Erlend Øye og ég rakst á tvo snillinga úr Datarock.

Eftir The Go! Team var haldið á Pravda þar sem Erlend Øye var að DJ-a. Ég get alveg sagt það að mér hefði aldrei dottið í hug að ég gæti skemmt mér svona vel á Pravda (þrátt fyrir sætasta barþjónin í bænum). Erlend er mega snillingur og ég mæli með að fólk tjekki á Kings of Convenience, Whitest Boy Alive og sóló stöffinu hans.

Ég fór ’snemma’ heim á föstudaginn, eða kl 4, því ég var búin að melda mig á árshátíð Landsbankans á laugardagskvöldið. Laugardagurinn var tekinn í ýmislegt stúss með mömmu sem fól meðal annars í sér sokkabuxnakaup í Lyfju í Lágmúlanum. Það er svo sem ekki frásögu færandi, nema hvað að þegar ég stóð í röð til að borga lít ég við og hugsa hvað er skrýtinn kall fyrir aftan mig. Svo lít ég aftur við til að skoða hann aðeins betur og þá er þetta bara meistari Nick Cave! Jebb, jebb.

Ég skellti mér í gamlan pæjukjól og nýju sokkabuxurnar og mætti í fordrykk heim til Ellu og Odds þar sam ég þekkti samasem engan og hengdi mig á Beggu og kærstan hennar. Eftir uþb. klukkutíma fordrykkjar partý var öllum smalað í rútur með smá nesti og keyrt niðrí Laugardalshöll. Þar var rosa góður matur og skemmtiatriði, en ég ákvað að stinga af eftir matinn þegar Brimkló steig á svið til að sjá Whomadewho á Gauknum.

Mér fannst fyrst soldið leiðinlegt að fara af árshátíðinn, því það var rosa fjör þar (og strákarnir komnir með það verkefni að finna ungan bánkastrák á uppleið fyir mig), en vá hvað ég sé ekki eftir því! Whomadewho er snilld, snilld, snilld! Kaiser Chiefs hvað? Ég er líka hætt við prettyboyið úr We are Scientists… vil frekar alvöru karlmann frá Danmörku.

Eftir Whomadewho löbbuðum við Árni framhjá Nasa þar sem var mega röð, kíktum inn á Pravda (boring), ætluðum þá á Þjóðleikhús Kjallarann þar sem var líka mega röð og enduðum á Grand Rock. Þar voru Sólstafir að spila og ehm.. voru ekkert sérstaklega töff, en Árni fékk sér einn bjór aður enn haldið var á Ellefuna. Á 11unni var stappað eins og venjulega og hittum við Sindra, Balla, Egill, Einar og Halldór og fleira fólk. Ég var frekar mikið overdressed í árshátíðarkjólnum, en dansaði samt af mér rassinn fram á rauða nótt. Það var sko gott að koma heim og fara úr háu hælunum.

Sunnudagurinn var tekinn í þynnku og lærdóm. Dugleg ég ;)

Jssr.