Samkvæmt Fréttablaðinu í dag munu Incubus spila í Laugardalshöllinni 3. Mars næstkomandi!
Jeij!
Samkvæmt Fréttablaðinu í dag munu Incubus spila í Laugardalshöllinni 3. Mars næstkomandi!
Jeij!
Ég fór í bókabúð um daginn að kaupa mér nýjasta Vogue. Það er kannski ekki frásögu færandi nema hvað að ég rakst á þetta:

Litlu strákarnir í Take That eru orðnir KARLAR! Og ljótu gaurarnir (Jason og Howard) eru bara orðnir miklu myndalegri en hinir. Það sem mér finnst samt mest spes við þetta er að ‘the exclusive first interview’ er í einu virtasta HOMMA blaði Bretlands. Síðast þegar ég vissi var engin meðlima Take That kominn opinberlega út úr skápnum, en lang flestar af þessum stráka hljómsveitum hafa haft að minnsta kosti einn samkynhneigðan með sér í hóp (t.d. Lance Bass úr N*Sync, Stephen Gately úr Boyzone og Eloy de Jong úr Caught in the Act). Ekki það að mér finnist eitthvað að því… mér finnst það bara athugavert.
Ég bjó í Þýskalandi þegar Take That voru upp á sitt besta og man vel eftir því þegar Robbie hætti í sveitinni. Þýskar unglingsstúlkur voru sko ekki sáttar. Það var mikið pælt í hvað hafði gerst og hvort hann myndi koma aftur. Ég sagði bara jeij, Robbie er hættur að væla og orðin töffari.
Eitt sumarið var rúmor um það að strákarnir væru gestir Hotel Treudelberg, sem var voða fínt golf hótel í sömu götu og ég bjó í. Það myndaðist algjört kaos í kringum hótelið, því fullt af litlum stelpum voru búnar að planta sér fyrir utan með skilti sem stóð á ‘Mark, Ich liebe dich’ og eitthvað svona rugl. Svo kom auðvitað í ljós að hljómsveitin var ekkert á þessu hóteli.
Í febrúar 1996 gáfu Take That út yfirlýsingu um að hljómsveitin væri að hætta. Það ætlaði allt að verða vitlaust, en þýskar unglingsstúlkur grétu í margar vikur. Það var mikið skrifað um þetta í Bravo blöðunum og svo voru settar upp hotlines sem stúlkur gátu hringt í ef sorgin varð of mikil, en það voru allavega 2 sjálfsmorð sem TT var kennt um.
Sem betur fer tóku Þýskurnar gleði sína á ný þegar Backstreet Boys mættu á svæðið með slagarann ‘We’ve got it going on’.

Verst að maður hitti ekki á þá þegar þeir voru á klakanum um daginn…
Vá!!! Ég fór á afmælis tónleika Sykurmolana í gær og ég er enn í sæluvímu. Who’da thunk it að þeir væru ennþá svona góðir eftir öll þessi ár?


Það var pakkað í höllinni og gríðarleg stemmning. Við Sindri vorum með stúkusæti sem var mega fínt. Einar Örn fór á kostum, hoppandi og skoppandi um sviðið, talandi við útlendingana í salnum og sagði svo að Sykurmolarnir væru í raun og veru bara ‘tæknileg mistök’. Björk Guðmundsdóttir hefur enn einusinni sannað hvað hún er geðveikt söngkona. Hún er svo ótrúlega tónviss og kraftmikil og all around skemmtilegur performer. Svo er hún líka svo sæt og svöööl!
Molarnir tóku 21 eitt lög fyrir krádið, en lögin sem mér fannst standa uppúr voru Deus, sem þau tóku á Íslensku, Hit, sem þau tóku eftir uppklapp og svo auðvitað Luftgitar! sem var tekið í seinna uppklappi. Þessir tónleikar voru bara snilld, snilld, snilld!
—
Ég vil minna fólk á að kíkjá þessa síðu og kjósa Tryggva Áka! Mig langar svo að getað sagt fólki að ég þekki Herra Ísland!
Jzzr.
Ég var að skoða myndir á Iceland Airwaves síðunni og rakst á þessa mynd:

Ég lít að vísu út eins og fífl á henni, en mér finnst hún samt algjör snilld.
November 3, 2006
Silverchair have announced that their highly anticipated new album will be called …
“Young Modern”
All songs for the disc are now fully recorded but the band is waiting for their mixer of choice to finish another album so he can begin work with them. At this stage that’s scheduled for January so release in the Australian autumn looks very likely.
Thanks everyone for your patience!!
Ég get ekki beðið!!!!!