Vá!!! Ég fór á afmælis tónleika Sykurmolana í gær og ég er enn í sæluvímu. Who’da thunk it að þeir væru ennþá svona góðir eftir öll þessi ár?

Það var pakkað í höllinni og gríðarleg stemmning. Við Sindri vorum með stúkusæti sem var mega fínt. Einar Örn fór á kostum, hoppandi og skoppandi um sviðið, talandi við útlendingana í salnum og sagði svo að Sykurmolarnir væru í raun og veru bara ‘tæknileg mistök’. Björk Guðmundsdóttir hefur enn einusinni sannað hvað hún er geðveikt söngkona. Hún er svo ótrúlega tónviss og kraftmikil og all around skemmtilegur performer. Svo er hún líka svo sæt og svöööl!

Molarnir tóku 21 eitt lög fyrir krádið, en lögin sem mér fannst standa uppúr voru Deus, sem þau tóku á Íslensku, Hit, sem þau tóku eftir uppklapp og svo auðvitað Luftgitar! sem var tekið í seinna uppklappi. Þessir tónleikar voru bara snilld, snilld, snilld!

Ég vil minna fólk á að kíkjá þessa síðu og kjósa Tryggva Áka! Mig langar svo að getað sagt fólki að ég þekki Herra Ísland!

Jzzr.