I must have been changed for Mabel!
Undanfarið hafa dagarnir verið eitthvað svo skrýtnir. Ég snýst í kringum sjálfa mig og veit ekki hvort ég sé að koma eða fara. Það vantar eitthvað jafnvægi í lífið, það er eitthvað sem er off, en ég get ekki ‘put my finger on it’ eins og sagt er á hinni góðu ensku. Umhverfið virðist vera eins en samt öðruvísi og á næturnar dreymir mig allskyns óhugsandi hluti. Er ég orðin að Lísu í Undralandi? Horfandi í gegnum spegilinn? Mér finnst allavega eins og það sé einhver fjarlægð á milli mín og fólksins í kringum mig.
Ég er í sjálfs- endurskoðun og sé að það er margt sem má endurbæta. Maður er enn einusinni kominn á það stig að þurfa að fara að ákveða hvað maður vill gera í framtíðinni, hvernig líf maður vill eiga og hvernig manneskja maður vill vera. Þessar pælingar geta orðið svo yfirþyrmandi og ruglingslegar að maður á í hættu að týna sjálfinu í sjálfum sér.
Á svona tímum er ég svo þakklát fyrir það hvað ég á góða og yndislega vini. Það eru nokkrir einsaklingar sem ég elska út af lífinu (þið vitið alveg hver þið eruð) og ég vil þakka þeim fyrir að gera mig að þeirri manneskju sem ég er. Ég veit að ég hef fullt af göllum og get verið óþolandi og erfið…
So when weakness turns my ego up
I know you’ll count on the me from yesterday
If I turn into another
Dig me up from under what is covering
The better part of me
Sing this song
Remind me that we’ll always have each other
When everything else is gone
Er ekki málið að taka bara beibístepps? Byrja á því að skrifa fyrstu ritgerðina í Comp 2 og taka viðtöl fyrir BA ritgerðina. Já, fyrir þá sem ekki vissu er ég búin að skipta um efni… aftur. Já, skvísan er búin að ákveða að skrifa um Ensku notkun innan fjármála fyrirtækja á Íslandi. Jebb. Don’t ask.
Svo er ég að spá í að setja strákamál algerlega á hold. Nenni ekki meira rugli. Tjah… nema draumaprinsinn banki uppá.
Beibístepps eru málið… en svo er líka fullt skemmtilegt framundan! Ég er að fara til JúEssEi í mars að hitta Þórdísi og ég get ekki beðið! Svo eru bara 56 dagar í Young Modern!!! Og Straight Lines er komið á mæspeis! Do I make sense?
wake me up low with a fever
walking in a straight line
set me on fire in the evening
everything will be finewaking up strong in the morning
walking in a straight line
lately i’m a desperate believer
walking in a straight line
Jzzr




Grunaði að þú yrðir á undan mér að blogga um Straight Lines.
Og mín vegna þarftu ekkert að breytast. Bara frábær eins og þú ert, frænka.
Comment by Kristján Atli — February 3, 2007 @ 1:49 am
Takk fyrir það frændi
Comment by Ragna — February 4, 2007 @ 2:20 pm
Úff veistu ég er í mjög svipuðu limbói og þú með framtíðarplönin, get ekki ákveðið neitt um neitt og finnst þetta allt of margar og stórar ákvarðanir sem ég þarf að taka. Svo er ég ekki einu sinni búin að negla BA-ritgerðarefni svo það stefnir í að hún tefjist hjá mér fram yfir sumarið, sem er algjör hausverkur.
Ég öfunda þig nú svolítið af þessu efni, finnst það góð hugmynd hjá þér.
Comment by Una Sighvatsdóttir — February 14, 2007 @ 6:31 pm