Hvað er að unglingum í dag? Ég trúi því ekki að þeim leiðist það mikið að þau þurfi að herma eftir Kevin Federline í CSI og ráðast á fólk af engu tilefni. Góður vinur minn sem vinnur á bar í miðbæ Reykjavíkur var að labba upp Laugarveginn á leiðinni heim til sín á fimmtudagskvöldið þegar það kemur strákur með skíðagleraugu og ræðst á hann. Á eftir stráknum koma þrír aðrir, en í staðinn fyrir að stöðva gaurinn og hjálpa vini mínum upp, þá byrja þeir að sparka í hann á meðan hann liggur á götunni. Vinur minn liggur nú á spítala með teina, plötu og 6 skrúfur í kjaftinum eftir kjálkabrot sem hann hlaut í árásinni. Ég veit ekki hvort gaurarnir náðust, en lögregluna grunaði einhverja stráka sem voru að koma af menntaskólaballi og vinur minn var víst númer 2 þetta kvöld.
Í gær nótt, stuttu eftir að ég kom heim um 3 leytið heyrði ég einhver læti úti á götu. Ég bý í mjög friðsælu hverfi og fór því út í glugga að athuga hvað væri í gangi. Það voru 3 unglings strákar að berja á hurðina og alla glugga hjá nágranna mínum (kattarkonunni sem er einstæð móðir með 3 ketti). Þeir voru fullir, kallandi og hrópandi, pissuðu í garðinn hjá henni og dreyfandi tómum bjórdósum. Ég var við það að hringja í lögregluna þegar þeir fóru aftur inní bíl eftir að lítil ljóshærð stelpa sem var bílstjórinn kallaði á þá. Svo í morgun tóku mamma og pabbi eftir því að það var einhver leðja á eldhúsglugganum hjá okkur. Þegar betur var að gáð kom í ljós að krakkarnir höfðu hent 3 eggjum í húsið hjá okkur. Djöfull sé ég eftir að hafa ekki hringt í lögregluna.
Svo þarf nú varla að taka fram allt ruglið í Kaupmannahöfn þar sem ungt fólk er búið að ganga berseksgang í þrjár nætur. Hvað fær fólk til að henda múrsteinum í lögregluna og brenna bíla fólks sem á heima á svæðinu? Ungdomshus smungdomshus - ég bara skil ekki svona.
(Verð samt að segja að mér finnst pínu fyndið að einhver hafi málað litlu hafmeyjuna bleika. Spurning hvort það hafi verið mótmælendur frá ungdomshuset eða feministar?)
———
Fyrirutan allt þetta rugl er þetta búin að vera mjög skemmtileg helgi. Á föstudaginn fórum við Ragna Þorbjörg út að borða á Ítalíu og fengum mega góðan mat og svo var haldið á the Almighty KB (Kaffibarinn fyrir þá sem eru dense). Það var frekar furðuleg stemmning þegar við komum inn - Jón Atli var að DJa með nýja aflitaða hárið sitt og við þurftum að berjast í gegnum fullt af Dönum og Spánverjum til að komast á innri barinn, en þegar þangað var komið hittum við Maríu og eitthvað arkítekta lið. Seinna um kvöldið komu síðan Sindri og pakk og hressi Diddi með fullt lögfræði pakk. Jú, þetta var stuð og gaman.
Ég var soldið svekt daginn eftir - komst að því að ég pínu dense sjálf. Ég kikti aðeins á efri hæðina á KB og hugsaði ‘huh.. voða er mikið af stelpum hérna…’ Sá svo fyrrverandi fyrrverandi kærasta minn, talaði aðeins við hann og fór svo aftur niður án þess að líta betur í kringum mig. Í gær var mér síðan tjáð það að Incubus hafi verið á eftri hæðinni á Kaffibarnum allt föstudagskvöldið! Huggunin er samt sú að Brandon og Mike voru víst ekki… en vá hvað ég hlýt að vera selfabsorbed að taka ekki eftir þeim! Kannski bara allar helvítis grúppíurnar að blokka sjónlínuna fyrir mér…
Í gær fór ég að sækja skó sem ég keypti af Maríu hjá Vintage Iceland. Við erum að tala um háhælaða, rauða lakkskó! Sjitt, ég verð svo mikil gella á þeim!

Fór svo í þynnkumat á Makkann með Rögnu Þorbjörgu og svo voru það INCUBUS í höllinni! Vei! Þannig að ég skutlaðist eftir Sindra, Árna og eh… vini þeirra sem ég get ómuglega munað hvað heitir og í höllinni hittum við Jómba, Egil og Þorgeir.
Incubus voru magnaðir! Ég sá þá úti á Leeds festival 2005, en þetta var svona fimm sinnum meiri upplifun en það. Brandon sannaði aftur hvað hann er geðveikur söngvari, Mike fór af kostum á gítarnum og vá hvað ég elska Ben Kenney! Ben er svo fáranlega töff bassaleikari og hann smellur svo inní þessa hljómsveit - á greinilega heima í rokkinu.
Þeir tóku aðallega lög af Light Grenades og Crow, en það læddust nokkur eldri með. Hefði viljað heyra fleiri gömul lög, en maður getur kannski ekki búist við því. Var fáranlega sátt með fönkí útgáfuna af Redifine og Sick Sad Little World var hápúnkturinn fyrir mig. Gaman, gaman! Vei!
Eftir tónleikana stundaði ég smá skutlerí þar sem ég var bílandi og kíkti svo í smá teiti hjá Ástrósu með Halldóri þar sem allt hafnarfjarðar liðið var saman komið. Hef ekki séð mörg þeirra svo lengi þannig að það var rosa gaman.

Brandon, I’d have sex with you in the Kitchen. Jebb. Jzzr.

