Almennt, Menning og Samfélag, Djamm, Lífið, VinirApril 25, 2007 10:13 pm

Nú er liðin vika síðan húsin við Austurstrætiog Lækjargötu brunnu til kaldra kola. Mér finnst soldið fyndið að fólk sé að syrgja þessi hús vegna þess hversu gömul og menningarlega mikilvæg þau voru. Menningarlegt? Ég man ekki eftir að hafa verið neitt sérstaklega menningarleg inná Pravda… eða þegar ég var að háma í mig Kebab. Svo fannst mér þessi hús heldur ekkert rosalega falleg og mig grunar að fæstir hafi verið að pæla mikið í þeim fyrir brunann.

Auðvitað er samt alltaf skrítið að sjá eitthvað svona gerast. Eftir að ég var búin að loka öllum gluggum og hurðum hérna heim vegna brunalyktar, kveikti ég á sjónvarpinu og sat föst við skerminn að fylgjast með slökkvi starfinu, sem var alveg magnað. Ef ég væri strákur þá væri ég örugglega búin að skrá mig í slökkvuliðið núna.

Svo fór ég að hugsa um hvaða þýðingu þessi hús höfðu fyrir mér, því það eru ýmsar minningar sem spretta upp.

Ég man eftir að hafa farið á Rósenberg með Halldóri og Stjána frænda að sjá Eyvind Karlsson, bæði með uppistand og svo tvisvar með tónleika. Því miður hitti ég Stjána ekki nógu oft, en ég man að ég naut þessa að sitja þarna með vinunum, talandi um allt og ekki neitt á milli þess sem við hlustuðum á Eyvind.

Ég man þegar Wunderbar var þarna á þessum sama stað. Wunderbar var einmitt fyrsti skemmtistaður sem ég fór inná, en þá var ég 14 ára, klædd í buffaló skó, tark buxur og gallajakka. Dyrivörðurinn hefur greinilega ekki alveg verið að standa sig, en mér fannst þetta allta alveg ótrúlega merkilegt og gaman.

Ég fór bara einu sinni á Café Óperu, og það var á afmælisdegi mínum fyrir… hmm… 3 árum að mig minnir. Ég, mamma og pabbi og Halldór fórum og fengum okkur afmælismat og ég man að mér fannst foreldrar mínir sérstaklega skemmtilegir þetta kvöld. Ég man líka að ég var í bleikum jakka sem ég hafði keypt mér í Söru og lítið notað síðan og við fengum ömurlegt borð. Þjónninn bætti þó upp fyrir það, því hann var svo fyndinn og skemmtilegur.

Ég borðaði ekki oft á Kebab húsinu, en það kom þó fyrir. Ég man sérstaklega eftir einu skipti. Mig var búið að langa í kebab í svona viku þegar ég var að labba í leigubílaröðina af djamminu. Ég fór og keypti mér feitan Döner, lét pakka honum inn og ætlaði svo að borða hann þegar ég kæmi heim. Ég skellti honum og kókinu í veskið og hugsaði um hann alla leiðina heim - hlakkaði ekkert smá til að borða hann. Þegar ég kom á Austurbrúnina borgaði ég leigarann, tók lyfituna upp, fór úr skónum og lagðist aaaðeins upp í rúm. Daginn eftir vaknaði ég svo í öllum djamm fötunum ofan á sænginni, alveg ringluð og alveg búin að gleyma dönernum mínum. Það var ekki góð lykt í töskunni minni viku seinna þegar ég ætlaði að nota hana…

Pravda var ekki beint minn uppáhalds skemmtistaður, en ég á samt margar skemmtilegar minningar úr Austurstræti 22. Þegar ég var í Verzló var haldið eitt skemmtilegasta ballið þar inni, en þá hét staðurinn víst Astró. Það var Michael Jackson þema og allir í miklu stuði með hatta, apa, ‘komandi úr lýtaraðgerðum’ og allir með þessi svakalegu moonwalk og önnur dansmúv á hreinu.

Ég man líka þegar ég fór með Bróður mínum og fullt, fullt af útlendingum á Pravda og hann hélt að djammlífið í Reykjavík væri dautt. Þetta kvöld var staðurinn fullur af einhverju glötuðu pakki og tónlistinn hefur aldrei verið jafn leiðinleg.

Ég man þegar ákveðinn strákur kyssti mig í fyrsta skipti inná Pravda.

Ég man þegar barþjónninn hellti í mig skotum og tók sér svo pásu til að setjast hjá mér og tala við mig.

Ég man þegar Ari og Gunni unnu trúbadora keppnina og ég man þegar Til Hamingju Ísland var spilað 3x á einum hálftíma.

Já, það er ýmislegt sem rifjast upp fyrir manni, en nú verður maður að horfa til framtíðar. Vonandi er hægt að byggja þetta horn aftur upp og gera eitthvað skemmtilegt við það þannig að við getum búið til fleiri minningar.

AlmenntApril 14, 2007 5:41 pm

Ó mæ gad! Ó mæ gad!

Fokk Roskilde, fokk Reading. Hver er memm á þessa tónleika?

Og hvað í andskotanum þýðir “Tuesday April 17th at 9am”? Á hvaða fokkin tíma? Áströlskum þá? Ohhh.. ég VERÐ að fá miða!

Almennt, Tónlist, Menning og Samfélag, Sjónvarp, Enskan, VinirApril 12, 2007 11:06 pm

Sindri og Jómbi unnu getraunina og verða því að skipta þessum glæsilega vinningi á milli sín. Einari vantaði bara 2 uppá- Einar, ég skal fara með þér í ísbíltúr einhverntíman ;)

Hérna eru svörin:

1. “Zero” – Smashing Pumpkins
Intoxicated with the madness
I’m in love with my sadness

2. “Over and Over” – Hot Chip
Like a monkey with a miniature cymbal

3. “Personal Jesus” – Depeche Mode
Take second best
Put me to the test
Things on your chest
You need to confess
I will deliver
You know I’m a forgiver

4. “Over And Over Again (Lost & Found)” – Clap Your Hands Say Yeah!
No where’s the woolen sweater
You mentioned in the letter?

5. “The Hurricane” – Bob Dylan
She sees the bartender in a pool of blood,
Cries out, “My God, they’ve killed them all!”

6. “Ladyshave” – Gus Gus
Your heart is pumping base
And I like that

7. “Daft Punk is playing at my house” – LCD Soundsystem
I bought fifteen cases for my house
My house
All the furniture
Is in the garage

8. “Hurt” – NIN/Johnny Cash
What have I become
My sweetest friend
Everyone I know
Goes away in the end

9. “Army of Me” - Björk
You’re on your own now
We won’t save you
Your rescue-squad
Is too exhausted

10. “FUCK the pain away” - Peaches
Like sex on the beaches, Huh? What?
Huh? Right. What? Uhh
Huh? What? Right. Uhh

—–

Það fer að líða að júróvisjón og því miður held ég að Big Red taki þetta ekki í ár. The Eurovision Songcontest 2008 verður haldin í Sviss. Ekki spurning.


Vampires are alive
The legends have to survive
We’ll never come undone
And we will be forever young

Vampires get alive

I am a vampire, I’m a slave
I sleep through the daylight, hence my grave
In the darkness, in the shadows – here I am
(Here I am)

Ég meina hversu svalur er DJ Bobo? Geðveikir dansar og þessi texti! Hvílíkt meistarastykki! Hverjum öðrum hefði dottið í hug að ríma alive og survive? Eða young og undone?
Jebb. Sviss. 2008.

Almennt, Námið, Tónlist, Lífið, VinirApril 11, 2007 2:43 pm

Þar sem ég er komin með nóg af ritgerðarskrifum í bili ákvað ég að skella inn eins og einni getraun. Þetta eru allt enskir lagatextar sem hafa verið lauslega þýddir á móðurmálið og bið ég um lagaheiti og flytjanda. Verðlaunin eru ferð í pool og í bíó með mér. Skemmtilegt.

1)
Í sæluvímu út af vitfirringunni
Ég er ástfanginn af því hversu sorglegur ég er

2)
Eins og api með smækkaðan málmgjöll

3)
Taktu það næst besta
Og gefðu mér próf
Það sem liggir þér á hjarta
þú verður að játa því
ég mun koma því til skila
Þú veist að ég er fús til að fyrirgefa

4)
Nei, hvar er lopapeysan
sem þú talaðir um í bréfinu?

5)
Hún sér barþjóninn liggja í blóði sínu
og öskrar ‘Ó Guð! Þeir hafa drepið þá alla!”

6)
Hjartað þitt dælir bassa
Og mér líkar það

7)
Ég keypti 15 kassa fyrir húsið mitt
húsið mitt
Öll húsgögnin
Eru úti í skúr

8)
Að hverju hef ég orðið
Sætasti vinur minn?
Allir sem ég þekki
Fara á endanum

9)
Þú ert aleinn núna
Við munum ekki redda þér
Björgunarsveitin þín
er allt of þreytt

10)
Eins og kynlíf á ströndinni? Ha? Hvað?
Ha? Rétt. Hvað? Öö
Ha? Hvað? Rétt. Öö

Almennt, Tónlist, Menning og Samfélag, Djamm, Lífið, Enskan, VinirApril 10, 2007 10:40 pm

Ætli það sé ekki kominn tími á ferðasögu. Ég fór til JúEssEi núna í Mars að heimsækja Þórdísi sem býr í Atlanta til að geta nördast í Georgia Tech. Planið var að hittast á JFK í stóra eplinu, New York City, en vegna veðurs var öllu innanlands flugi á NY svæðið aflýst og beið mín þá engin Þórdís þegar ég lenti. Ég þurftu því að standa á eigin fótum í landi tækifæranna og hringdi í Óskar, frænda Þórdísar og gestgjafa okkar í NYC, til að láta hann vita að ég væri komin og til að staðfesta heimilisfangið hans. Næst vippaði ég mér í leigubílaröðina fyrirutan og hugsaði með mér að hefði ég verið á Íslandi stæði ég eflaust einnig í leigubílaröð - bara verr klædd og ekki með farangur.
Ég hélt ég myndi deyja í leigubílnum á leiðinni til Óskars. Það var snjór og brjáluð hálka, en leigubílsstjórinn sem kom frá einhverju landi þar sem þeir vita ekki hvað vont veður er, keyrði eins og óður maður. Ég komst þó á leiðarenda og sofnaði fljótlega á sófanum hjá Óskari.
Næsta morgun labbaði ég með gestgjafa mínum í skólan hans, Cooper Union, þar sem ég skildi við hann og hélt áfram niðrí Soho. Villtist aðeins þar, en fann svo Urban Outfitters sem lagaði allt og hélt svo fljótlega aftur heim til að taka á móti Dísu Skvísu sem var loksins komin frá Atlanta.

a comic strip!

Eftir skemmtilega helgi í NYC var leiðinni haldið til Atlanta, Georgia. Ég hef aldrei séð aðra eins traffík á flugvölli eins og á Laguardia í Ny. Við skildum ekkert í því hversvegna vélin beið svona lengi á völlinum fyrir flugtak, en þegar út um gluggan var gægt sá maður skýrinunga. Við horfðum á vélar lenda og taka á flug til skiptis (m.a. Airforce 2) í rúman klukkutímar því það var biðröð til flugtaks og þegar við loksins komust í loftið töldum við 17 vélar á eftir okkur í flugtaks biðröðinni.

Atlanta er mjög skemmtileg og soldið furðuleg borg, með glatað samgöngu kerfi (sem er kallað Marta) og þarf maður því helst að vera á bíl. Hún er mikil blanda af há- og lágmenningu með ghetto hverfi, 2 mjög stóra háskóla, aðalstöðvar Coca-Cola og ef maður fór aðeins út fyrir sá maður fólk með alvöru mullet!

a comic strip!

Næst var leiðinni haldið til Svövu og Helga á Miami, Flórida. Mér leið ekki vel í flugvélinni síðustu 20 mínuturnar fyrir lendingu, því þrátt fyrir sól og blíðu úti lentum við í mestu ókyrrð í lofti sem ég hef nokkurn tíman upplifað. Sem betur fer var maður samt fljótur að gleyma því þegar við vorum komnar á sólbekki, klæddar bikinium við sundlaugina.

a comic strip!

Ég flaug síðan frá Miami til JFK og þaðan heim. Ég átti að hafa rúma 2 tíma á völlinum í NY, en sökum seinkunnar þurfti ég að hlaupa á milli véla og rétt náði. Töskurnar aftur á móti gistu í New York og komu degi seinna.
Ég skemmti mér einstaklega vel í þessari ferð. Auðvitað gaman að hitta Þórdísi og Svövu og svo var svo gaman að fara á 3 svona ólíka staði í einu landi. Maður á það til að stimpla Bandaríkin sem eitthvað eitt, en það er augljóslega hægt að finna alla flóruna þarna í landi tækifæranna.