Þar sem ég er komin með nóg af ritgerðarskrifum í bili ákvað ég að skella inn eins og einni getraun. Þetta eru allt enskir lagatextar sem hafa verið lauslega þýddir á móðurmálið og bið ég um lagaheiti og flytjanda. Verðlaunin eru ferð í pool og í bíó með mér. Skemmtilegt.
1)
Í sæluvímu út af vitfirringunni
Ég er ástfanginn af því hversu sorglegur ég er
2)
Eins og api með smækkaðan málmgjöll
3)
Taktu það næst besta
Og gefðu mér próf
Það sem liggir þér á hjarta
þú verður að játa því
ég mun koma því til skila
Þú veist að ég er fús til að fyrirgefa
4)
Nei, hvar er lopapeysan
sem þú talaðir um í bréfinu?
5)
Hún sér barþjóninn liggja í blóði sínu
og öskrar ‘Ó Guð! Þeir hafa drepið þá alla!”
6)
Hjartað þitt dælir bassa
Og mér líkar það
7)
Ég keypti 15 kassa fyrir húsið mitt
húsið mitt
Öll húsgögnin
Eru úti í skúr
8)
Að hverju hef ég orðið
Sætasti vinur minn?
Allir sem ég þekki
Fara á endanum
9)
Þú ert aleinn núna
Við munum ekki redda þér
Björgunarsveitin þín
er allt of þreytt
10)
Eins og kynlíf á ströndinni? Ha? Hvað?
Ha? Rétt. Hvað? Öö
Ha? Hvað? Rétt. Öö


Sindri kom með rétt svör á 2, 5 og 8 á msn áðan.
Comment by Ragna — April 11, 2007 @ 5:35 pm
mér þætti ofboðslega gaman ef að nr.8 væri í samræmi við fónetískan misskilning sem ég var einusinni sekur um, og þar stæði “sænski vinur minn”
p.s. það er fáránlega mikið batterí að kommenta hér.
Comment by diddi — April 11, 2007 @ 5:49 pm
Diddi kom með 7, 8 og 9 rétt þegar hann var að skammast í mér útaf kommentakerfinu á msn.
Málið er að ég þarf að samþykkja þá sem eru að kommenta í fyrsta skipti, so sit tight ef það kemur ekki strax inn.
Comment by Ragna — April 11, 2007 @ 6:35 pm
Ooog… Þorgeir er kominn með 5, 8 og 9
Comment by Ragna — April 11, 2007 @ 7:19 pm
Einar er kominn með 7 af 10.
Comment by Ragna — April 11, 2007 @ 10:44 pm
Iss, piss. Ég er svo glötuð í þessu að ég þyrfti að heyra lögin til að kannast eitthvað pínulítið í þessu! Hehe, er engin tónlistargúru. Langaði bara að skilja eftir comment.
Comment by Anna Kristjana — April 12, 2007 @ 1:16 am
þú ert ekkert smá öflug í blogginu.. alveg 3 færslur á dag.. hehehe..
en annars kannast ég ekki við neitt af þessu.. híhí
Comment by Thelma — April 12, 2007 @ 1:52 pm
Já Thelma, rosa öflug… 3 færslur á dag á svona tveggja mánaðar fresti.
Anna Kristjana - ég skil það vel, þetta er ekki fyrir alla. En alltaf gaman að fá komment
Comment by Ragna — April 12, 2007 @ 3:29 pm
Lag nr. 3 er nasty í svona leik!!!
ps: 1 örugglega líka..
hef ekki hugmynd hvað það er…. ennþá
Comment by Einar — April 12, 2007 @ 4:56 pm
1. “Zero” – Smashing Pumpkins
2. “Over and Over” – Hot Chip
3. “Personal Jesus” – Depeche Mode
4. “Over And Over Again (Lost & Found)” – Clap Your Hands Say Yeah!
5. “The Hurricane” – Bob Dylan
6. “Ladyshave” – Gus Gus
7. “Daft Punk is playing at my house” – LCD Soundsystem
8. “Hurt” – NIN/Johnny Cash
9. “Army of Me” - Björk
10. “FUCK the pain away” - Peaches
Comment by Sindri & Jómbi — April 12, 2007 @ 5:21 pm
Uss! Það var rétt! (eða á maður að segja lagið?)
Hvað viljiði þá? Dobbel deit? Eða einn í pool og annar í bíó?
Comment by Ragna — April 12, 2007 @ 5:40 pm