I must have been changed for Mabel!
Undanfarið hafa dagarnir verið eitthvað svo skrýtnir. Ég snýst í kringum sjálfa mig og veit ekki hvort ég sé að koma eða fara. Það vantar eitthvað jafnvægi í lífið, það er eitthvað sem er off, en ég get ekki ‘put my finger on it’ eins og sagt er á hinni góðu ensku. Umhverfið virðist vera eins en samt öðruvísi og á næturnar dreymir mig allskyns óhugsandi hluti. Er ég orðin að Lísu í Undralandi? Horfandi í gegnum spegilinn? Mér finnst allavega eins og það sé einhver fjarlægð á milli mín og fólksins í kringum mig.
Ég er í sjálfs- endurskoðun og sé að það er margt sem má endurbæta. Maður er enn einusinni kominn á það stig að þurfa að fara að ákveða hvað maður vill gera í framtíðinni, hvernig líf maður vill eiga og hvernig manneskja maður vill vera. Þessar pælingar geta orðið svo yfirþyrmandi og ruglingslegar að maður á í hættu að týna sjálfinu í sjálfum sér.
Á svona tímum er ég svo þakklát fyrir það hvað ég á góða og yndislega vini. Það eru nokkrir einsaklingar sem ég elska út af lífinu (þið vitið alveg hver þið eruð) og ég vil þakka þeim fyrir að gera mig að þeirri manneskju sem ég er. Ég veit að ég hef fullt af göllum og get verið óþolandi og erfið…
So when weakness turns my ego up
I know you’ll count on the me from yesterday
If I turn into another
Dig me up from under what is covering
The better part of me
Sing this song
Remind me that we’ll always have each other
When everything else is gone
Er ekki málið að taka bara beibístepps? Byrja á því að skrifa fyrstu ritgerðina í Comp 2 og taka viðtöl fyrir BA ritgerðina. Já, fyrir þá sem ekki vissu er ég búin að skipta um efni… aftur. Já, skvísan er búin að ákveða að skrifa um Ensku notkun innan fjármála fyrirtækja á Íslandi. Jebb. Don’t ask.
Svo er ég að spá í að setja strákamál algerlega á hold. Nenni ekki meira rugli. Tjah… nema draumaprinsinn banki uppá.
Beibístepps eru málið… en svo er líka fullt skemmtilegt framundan! Ég er að fara til JúEssEi í mars að hitta Þórdísi og ég get ekki beðið! Svo eru bara 56 dagar í Young Modern!!! Og Straight Lines er komið á mæspeis! Do I make sense?
wake me up low with a fever
walking in a straight line
set me on fire in the evening
everything will be finewaking up strong in the morning
walking in a straight line
lately i’m a desperate believer
walking in a straight line
Jzzr
Jæja, þá er maður búinn að púlla all-nighter á ritgerð fyrir Tolkien kúrsinn. Maður var orðinn vel klikkaður á koffíni og breinóverlódi, en þetta hafðist fyrir rest. Gaman að mæta svo í vinnuna eftir bara nokkura tíma svefn (þar sem mig dreymdi einungis hobbita, álfa og eitthvað rugl). Það ætti að banna að setja skilafrest á kl 9 um morgun!!
Annars er hérna sma brot úr myndinni Clerks 2 þar sem fjallað er um Lord of the Rings:
Verst að maður skuli ekki hafa fattað að vitna í þetta í ritgerðar langlokunni…
Ég á það til að kikjá á stjörnuspána mína þegar ég fletti blöðum. Ég trúi svo sem ekki mikið á þetta, en stundum er nú alveg eitthvað til í þessu. Um daginn stóð ‘tvíburinn þarf að hætta að velta öllu svona mikið fyrir sér og venja sig á að taka ákvörðun strax því þá mun honum líða miklu betur. Þetta á nú eflaust við um fleiri en einungis þá sem eru fæddir í tvíburamerkinu, en ég á oft í miklum erfiðleikum með að ákveða mig. Er með einhvern valkvíða þegar kemur að vissu hlutum, og finnst best þegar er valið fyrir mig.
Nú er ég komin á fjórða ár í þriggja ára námi og þarf að fara að byrja á BA ritgerðinni. Í fyrra var planið að taka 20 einingar á haustönn og 20 á vorönn og skrifa ritgerðina um sumarið. Það gekk ekki eftir, en í fyrra haust hætti ég með kærastanum mínum og missti vinkonu á svipuðum tíma. Námið var ekki beint það sem ég var að hugsa um og endaði með að klára 12 einingar en ekki 20. Á vorönn voru enn miklar breytingar í gangi í kringum mig og námið ennþá frekar aftarlega í forgangsröðinni.
Þar sem ég átti enn nokkrar einingar, var frekar pointless að skrifa BA ritgerð yfir sumarið, en ég ætlaði samt að reyna að lesa mig aðeins til og undirbúa mig aðeins fyrir hana. Ég gerði mér svo sem grein fyrir því að ég væri að vera soldið bjartsýn - hver les fyrir skólann yfir sumarið? - en ég setti mér samt það markmið að vera búin að ákveða efni fyrir þessa blessuðu ritgerð um miðjan júli.
Það ætti nú ekki að vera svo mikið mál að ákveða ritgerðar efni. En svo kom júlí og fór, og svo kom ágúst og skólinn byrjaði, og svo kom september og fór og þá hugsaði ég ‘Fokk, fokk, fokk!’ Ég er búin að hugsa og hugsa um hvað ég ætla skrifa um í marga mánuði, en ekkert. Ég hef ekki fengið eina góða hugmynd, sem ég gæti hugsað mér að skrifa um. Ég var alveg komin á það að taka bara klassísku leiðina og skrifa eitthvað um Shakespeare og rumpa þessu af. Vúbbdídú.
Á sunnudaginn fór ég út að borða með vini mínum (sushi í Iðuhúsinu! Namminamm) og við vorum að tala um skólann og hvaða kúrsum ég væri í. Hann lærir stærðfræði alla daga (pant ekki!) og var að öfunda mig fyrir að fá að lesa bækur eftir Tolkien, Terry Pratchett, CS Lewis fyrir skólann og spurði afhverju ég skrifaði ekki bara um Tolkein til dæmis. Mér hafði reyndar dottið það í hug, enda er hann mjög áhugaverður rithöfundur og hægt að gera margt í kringum hann. Af einhverri ástæðu hef ég samt aldrei verið alveg ánægð með þá hugmynd.
Á mánudaginn fór ég svo í tíma í fantasíu barna- og unglingabókmenntum á fyrirlestur um ‘Charlie and the Chocolate Factory’ eftir Roald Dahl og það rann uppi fyrir mér ljós. Afhverju skrifa ég ekki um eitthvað eftir Roald Dahl? Ég las bækurnar hans fyrst á hollensku þegar ég var krakki, las þær svo aftur á þýsku þegar ég bjó Hamborg og er nú að lesa Charlie fyrir skólann. Þetta er eitthvað sem ég hef áhuga á og mun hafa gaman af. Jeij!
Það er þá ákveðið að BA ritgerðin mín í Ensku verður um eitthvað sem tengist Roald Dahl og mér líður miklu betur. Þá er bara að ákveða hvort það verður Matilda, Witches eða Charlie.

Jssr.



